Skip to product information
1 of 2
Magn
Fullt verð 5,950 ISK
Fullt verð Tilboðsverð 5,950 ISK
Tilboð Uppselt
Skattur innifalin Shipping calculated at checkout.

Vörumerki

Skapaðu þitt eigið heimilissprey - Rökkur

Skapaðu þitt eigið heimilissprey - Rökkur

Heimilissprey DIY box – Rökkur

Búðu til þitt eigið heimilissprey með fersku bergamoti, mjúkum lavender og djúpum, jarðbundnum vetiver. Ilmurinn sameinar fágaða sítrustóna, mildan blómailm og hlýja angan af viði og jörð. Blanda sem gefur heimilinu mjúkan og notalegan ilm.

Við leggjum áherslu á vönduð hráefni og notum aðeins fyrsta flokks ilmkjarnaolíur. Spreygrunnurinn okkar inniheldur vatn, alkóhól og örlítið E-vítamín.

Í kassanum finnur þú það sem þarf til að blanda ilminn og útbúa þitt eigið heimilissprey. Einföld og skemmtileg upplifun fyrir þig eða falleg gjöf handa þeim sem hafa gaman af góðum ilmum og skapandi stundum.

Kassinn inniheldur:

  • Amberlitaða glerflösku 100 ml með spreyhaus
  • Þrjár ilmkjarnaolíur: bergamot, lavender og vetiver
  • Spreygrunn
  • Trekt og pípettur
  • Merkimiða
  • Leiðbeiningar og uppskrift að rökkri

Fylgdu uppskriftinni eða prófaðu þig áfram með hlutföllin og finndu þína uppáhaldsblöndu.

Lítil skapandi stund — mjúkur ilmur með jarðbundinni dýpt.

Öruggar greiðslur og sendingar

  • Afgreiðum pantanir innan 1–3 virkra daga
  • 30 daga skilafrestur
  • Örugg greiðsla
Skoða upplýsingar

Viltu vita meira?

Ávinningur

Notkunar leiðbeiningar

Innihaldsefni

Spurningar um vöruna