Við komum með ilmupplifunina til þín - Búðu til þinn eigin heimilisilm eða ilmolíu
Langar þig að gera eitthvað nýtt og skemmtilegt með hópnum þínum og njóta notalegrar, skapandi stundar í heimi ilmanna.
Ég kem til ykkar með allt efni og leiði ykkur í gegnum að velja og blanda persónulegan heimilisilm eða ilmolíu.

Engin fyrri kunnátta er nauðsynleg. Þið þurfið bara að mæta með forvitni og löngun til að skapa eitthvað ykkar eigið.
Við prófum ólíka ilmi, finnum uppáhaldssamsetningarnar og búum til ilm sem hver þátttakandi tekur með sér heim.
Allt efni og áhöld til ilmgerðar, leiðsögn í gegnum ferlið, þinn eigin heimilisilmur eða ilmolía til að taka með heim, ásamt búbblum og nasli.

Ilmupplifunin hentar vel fyrir vinkonu- og vinahópa, vinnustaði, afmæli og önnur tilefni þar sem þið viljið eiga skemmtilega stund saman. Ég kem með upplifunina til ykkar.
Verð: 10.500 kr. á mann
Lágmarksfjöldi: Sex þátttakendur
Lengd: 2-21/2 klukkustund
Þjónustusvæði: Höfuðborgarsvæðið,
Hafðu samband með óskadagsetningu, staðsetningu og fjölda þátttakenda og við finnum tíma fyrir hópinn þinn.