Shipping policy
Skilmálar
Myrra living
S: 6988168
Kt: 670807-2740
Vsk: 96089
Reikningsnr. 0358-26-000985
Netfang: siggalara@myrraliving.is
Instagram:
Facebook:
Vefsíða: www.myrraliving.is
Afgreiðsla og afhending pantanna
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 11% eða 24% vsk en sendingakostnaður bætist
síðan við áður en greiðsla fer fram.
Þegar þú verslar hjá Myrra living getur þú valið um að fá pöntunina senda á næsta
pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað. Ef verslað er fyrir 12.000 kr eða meira eru
vörurnar sendar að kostnaðarlausu á næsta pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað.
Afgreiðslutími pantana er 1-3 virkir dagar. Sé vara ekki til á lager munum við hafa
samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða varan endurgreidd sé
þess óskað.
Kaupandi ber ábyrgð á að gefa upp rétt heimilisfang og velja réttan afhendingarmátar
við pöntun. Vörur eru að jafnaði póstlagðar næsta virka dag eftir pöntun. Pantanir eru
ekki afgreiddar fyrr en kaupandi hefur sannarlega innt greiðslu af hendi. Myrra living ber fulla ábyrgð á vöru þar til hún telst afhent kaupanda. Sæki kaupandi vöru ekki á
tilsettum tíma og það má rekja til kaupanda eða atvika sem hann ber ábyrgð á, flyst
áhættan yfir á kaupanda þegar hlutur er honum til reiðu á umsömdum afhendingarstað.
Ef samið hefur verið um annan afhendingarstað en hjá seljanda flyst áhættan yfir til
kaupanda þegar varan er afhent á umsömdum tíma og stað og kaupanda er kunnugt
um að varan er tilbúin til afhendingar. Áhætta af söluhlut flyst yfir til neytenda þegar hann hefur veitt honum viðtöku sbr. 14. gr. laga um neytendakaup nr. 48/2003. Þegar áhætta af hinni seldu vöru hefur flust yfir til kaupanda hefst skylda hans til þess að greiða kaupverðið þótt varan kunni eftir það að farast, skemmast eða rýrna ef um er að ræða atvik sem ekki má rekja með beinum hætti til seljanda.
Greiðsla og sendingarkostnaður
Hægt er að greiða með kredit- og debetkortum, eða Netgíró. Ef greitt er með Netgíró eða með kredit-, debetkortum í gegnum örugga greiðslusíðu er korthafi fluttur á viðeigandi vef þegar kemur að greiðslu. Greiðslur með kredit- og debetkortum
eiga sér stað í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi þar sem kortaupplýsingar eru skráðar og
greiðsla fer fram. Myrra living tekur því hvorki við né geymir kortaupplýsingar.
Netgíró býður upp á kortalaus viðskipti á netinu. Til að greiða með Netgíró þarftu að
vera með virkan aðgang, hægt er að nýskrá sig á vefsíðu Netgíró. Þegar þú greiðir með
Netgíró þarftu aðeins að slá inn kennitölu og lykilorð og þá er pöntunin frágengin.
Reikningur vegna kaupanna kemur í heimabankann með gjalddaga eftir 14 daga og er
hann vaxtalaus. Einnig býður Netgíró upp á raðgreiðslur vegna vörukaupa og er
mögulegt að dreifa því á 2-12 mánuði (fer eftir upphæð kaupanna). Lágmarkskaup fyrir
raðgreiðslur er 15.000 kr.
Frí heimsending er á pöntunum ef verslað er fyrir 12000 kr. og yfir nema annað komi fram í lýsingu á vöru.
Verð
Myrra living áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og að hætta við pantanir ef
verð vörunnar er rangt skráð í vefverslun. Öll verð í vefverslun eru gefin upp með
virðisaukaskatti en sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram.
Vöruskil
Skilaréttur er 30 dagar frá móttöku vöru. Kaupandi er ábyrgur fyrir þeirri rýrnun á
verðgildi vöru sem stafar af meðferð vörunnar, annarrar en þeirrar sem nauðsynleg er til
að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar. Seljandi áskilur sér rétt til að
sannreyna að varan sé í lagi, þó innan eðlilegra tímamarka. Hægt er að skipta í aðra
vöru, fá inneignarnótu eða fá vöruna endurgreidda með sama máta og greitt var fyrir hana. Athugið að ef greitt var fyrir vöruna með kreditkorti þá er eingöngu endurgreitt á sama kort. Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur og kaupandi ber ábyrgð á sendingunni þar til hún hefur borist Myrru living. Kaupandi getur komið ósk sinni um skipti/skil á vöru á framfæri við seljanda með tölvupósti á info@myrraliving.is en getur einnig nýtt sér staðlað uppsagnareyðublað sem finna má hér: https://www.reglugerd.is/reglugerdir/allar/nr/435-2016
Gölluð vara
Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan
sendingarkostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum sé þess krafist. Vinsamlegast
sendið okkur tölvupóst á info@myrraliving.is með upplýsingum um galla vörunnar.
Tilkynningarfrestur kaupanda vegna galla í vöru er tvö ár eða eftir atvikum fimm ár ef
hluti er ætlaður verulega lengri endingartími en almennt gerist sbr. 2. mgr. 27. gr. laga
um neytendakaup. Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003.
Trúnaður (Öryggisskilmálar)
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í
tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar
þriðja aðila, nema svo beri skylda til gagnvart lögum. Öll umferð um myrraliving.is er
dulkóðuð yfir örugga tengingu (HTTPS).
Fyrirvari
Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp
ágreiningur milli aðila skal bera málið undir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa. Dugir
það ekki verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum. Það skal
gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda.
Ertu með fyrirspurn eða ábendingu? Sendu okkur póst á siggalara@myrraliving.is
Vefverslunin Myrra living er rekin af Iceland heritage ehf. lögheimili Reykási 49, 110
Reykjavík.