Nýtt Gjafabox! Vörurnar í gjafaboxunum eru með 15% afslætti og boxin eru afhent í glæsilegum gjafakassa.

Falleg heimili, ómóstæðilegar vörur, fallegar gjafir og alltaf gott verð!
Versla

Henua Organics - Nýtt vörumerki á Íslandi!

Margverðlaunaðar hágæða náttúrulegar húðvörur í sinni tærustu mynd. Formúlurnar byggja á lífrænum og virkum innihaldsefnum ekkert vatn, engin fylliefni.
Versla

Er húðin þurr í kuldanum?

Olíurnar frá Ancient wisdom er einstaklega rakagefandi olíur sem fara fljótt inn í húðina en halda raka á húðinni í 48 tíma. Olíurnar eru Blandaðar með hreinum ilmkjarnaolíum í grunnolíu sem er vínberjafræolía. Verð 1.950 krónur
Versla

Skartgripir fyrir öll tækifæri

Fjölbreytt úrval af fallegum skartgripum

Versla

Um okkur

Um Myrraliving

Ég heiti Sigga Lára og hef starfað í smásölu í yfir 23 ár. Á þeim tíma hef ég öðlast dýrmæta reynslu við útstillingar, verið verslunarstjóri og rekstrarstjóri hjá metnaðarfullum og flottum fyrirtækjum sem mótuðu sýn mína á gæði, fagmennsku og góða upplifun viðskiptavina.

Haustið 2025 fann ég að tími væri kominn á breytingar. Mig langaði að fara að vinna fyrir sjálfa mig, fylgja eigin innsæi og byggja eitthvað sem endurspeglar bæði reynslu mína og ástríðu. Úr varð Myrra living, vefverslun með fallegar og vandaðar vörur á góðu verði.

Hjá Myrra living legg ég mikla áherslu á að vörurnar sem ég vel séu framleiddar á sanngjarnan hátt, með virðingu fyrir fólki og náttúru. Ég trúi því að fegurð, gæði og ábyrgð geti farið saman.

Ég hef sérstakan áhuga á hreinum húðvörum, snyrtivörum og sælkeravörum, vörum sem gleðja skilningarvitin og gera hversdaginn aðeins fallegri. Markmiðið mitt er að blanda þessu saman á skemmtilegan og áhugaverðan hátt og bjóða upp á vandað úrval sem ég sjálf trúi á og nota.

Myrra living er ekki bara vefverslun, hún er safn af vörum sem hafa verið valdar af alúð, með hjarta og fagmennsku að leiðarljósi. Hægt er að kíkja til mín í heimsókn í litlu verslunina mína á þriðjudögum og fimmtudögum milli 12-16. Vertu hjartanlega velkomin!