Macramé vegglist – náttúrulegt handverk í nútímalegri innréttingu

Endurkoma macramé, þegar handverk verður hönnun

“Macramé is no longer just a craft — it’s a design language.”

Macramé er að koma sterkt inn aftur, ekki sem nostalgískt handverk heldur sem hluti af nútímalegri hönnun. Það sem áður tengdist boho-stíl hefur þróast yfir í að verða meðvitaður hluti af innanhússhönnun þar sem áhersla er lögð á efni, áferð og handverk. 

Macramé hefur í raun gengið í gegnum endurvakningu þar sem það sameinar hefðbundna tækni við nútímalegan stíl og sjálfbærni.

Í dag sjáum við aukna áherslu á náttúruleg efni og hlýju í rýmum. Efni eins og bómull, viður og hör skapa jafnvægi og ró.

Macramé fellur fullkomlega inn í þessa þróun:

  • mjúk áferð
  • handgerð form
  • náttúrulegir litir

Það bætir ekki bara útlit heldur líka tilfinningu rýmisins.

“Textiles are becoming the new wall art.”

Macramé er ekki lengur bara aukahlutur heldur orðið að sjónrænu “statement” í rýmum.

Það er notað sem:

  • vegglist
  • plöntuhengi
  • lýsing
  • skúlptúr

og gefur rýminu dýpt og karakter. Rannsóknir á innanhússhönnun sýna að slík áferð gerir rými hlýrri og manneskjulegri.

Endurkoma macramé tengist sterklega:

  • sjálfbærni
  • handverki
  • minni fjöldaframleiðslu

Fólk sækist eftir vörum með sögu og persónuleika. Macramé vörurnar frá Myrra Living eru framleiddar með sanngjörnum hætti í Indónesíu af fjölskyldufyrirtæki sem leggur áherslu á gæði, handverk og sjálfbæra framleiðslu.

Macramé hefur þróast frá því að vera hreinn boho-stíll yfir í að passa inn í nútímalega skandinavíska fagurfræði.

Það sem gerir það áhugavert í dag:

  • einföld og hreinskilin form
  • náttúruleg efni
  • mjúk en samt skýr hönnun

Macramé vörur geta verið bæði hagnýtar og skúlptúral, hluti af rýminu en á sama tíma eitthvað sem vekur athygli.

Innblástur og greinar sem ég vísa í 

18 Best Macramé Wall Hangings for Bringing All the Boho Vibes | Architectural Digest

Modern macramé: from handcrafted tradition to decoration trend | Domestika

20 Creative Ways to Style Your Home With Macrame

Macramé in 2025: A Craft That’s Here to Stay

Til baka í bloggið