Búðu til þína eigin ilmolíu með fersku bergamoti, mjúkum lavender og djúpum, jarðbundnum vetiver. Ilmurinn sameinar fágaða sítrustóna, mildan blómailm og hlýja angan af viði og jörð. Blanda sem gefur heimilinu mjúkan og notalegan ilm.
Við leggjum áherslu á vönduð hráefni og notum aðeins fyrsta flokks ilmkjarnaolíur. Grunnurinn er hrein fljótandi kókosolía, e vítamín og hreinar ilmkjarnaolíur.
Í kassanum finnur þú það sem þarf til að blanda ilminn og útbúa þína eigin ilmolíu. Einföld og skemmtileg upplifun fyrir þig eða falleg gjöf handa þeim sem hafa gaman af góðum ilmum og skapandi stundum.
Kassinn inniheldur:
Tvær amberlitaðar glerflöskur 10 ml og innsiglis tappa
Þrjár ilmkjarnaolíur: bergamot, lavender og vetiver
olíugrunn
Trekt og pípettur
Merkimiða
Leiðbeiningar og uppskrift að rökkri
Fylgdu uppskriftinni eða prófaðu þig áfram með hlutföllin og finndu þína uppáhaldsblöndu.
Lítil skapandi stund — mjúkur ilmur með jarðbundinni dýpt.