Leyfðu ilmi jólanna að fylla heimilið. Appelsínur, epli, negulnaglar, kanilstangir, trönuber, stjörnuanís og greni mynda hlýlega blöndu af ávaxtakeim, jólakryddum og ferskum grenitónum.
Helltu innihaldinu í lítinn pott, bættu við vatni og láttu malla rólega við vægan hita. Notaleg stund á aðventunni og falleg lítil gjöf fyrir gestgjafann eða þann sem elskar jólin.
Notkun: Settu innihaldið í pott og bættu við um 5–7 dl af vatni, eða svo fljóti vel yfir hráefnið. Hitaðu að vægri suðu, lækkaðu hitann og láttu malla án loks. Bættu við vatni eftir þörfum.
Athugið: Aðeins ætlað til að gefa heimilinu jólailm, ekki til neyslu. Skildu pottinn aldrei eftir án eftirlits og gættu þess að hann sjóði ekki þurr.