Sage & Mintwood er ilmkerti með ilmkjarnaolíum þar sem fersk mynta, ilmrík salvía og mjúkir skógartónar mætast. Hreinn og frískandi jurtailmur með mildri dýpt sem skapar notalega stemningu á heimilinu.
Kertið er handhellt úr náttúrulegu sojavaxi og með viðarkveik sem gefur frá sér mildan brakandi hljóm þegar það logar. Græn glerkrukka, korklok og gjafaaskja úr kraftpappír skapa einfalt og náttúrulegt yfirbragð. Falleg gjöf eða notaleg viðbót við heimilið.
Vegan · Brennslutími um 26 klukkustundir
Ilmur: Ferskar jurtir, svalandi mynta og mjúkir viðartónar.