Henua Organics
Henua organics - Recharging moisturizer - Með birkisafa, furuberki og hafþyrni
Henua organics - Recharging moisturizer - Með birkisafa, furuberki og hafþyrni
Couldn't load pickup availability
Vítamínríkt andlitskrem fyrir þurra, viðkvæma og þroskaða húð.
Létt en djúpnærandi rakakrem ríkt af náttúrulegu C-vítamíni sem styrkir húðhjúpinn og styður við náttúrulega endurnýjun húðarinnar.
Recharging Moisturizer er fer hratt inn í húðina, kremið er hannað fyrir þurra, viðkvæma og húð sem er að eldast, hjálpar til við að endurheimta vellíðan, styrk og ljóma húðarinnar.
✔ Djúpnærir án þess að vera þungt á húðinni
✔ Styður við náttúrulega kollagenframleiðslu
✔ Mýkir fínar línur og lýsir húðina
✔ Hentar bæði dag- og kvöldnotkun
Framleitt í Finnlandi með næringarríkum norrænum jurtaefnum.
Þróað frá grunni af stofnandanum og snyrtifræðingnum Jenni Tuominen.
Létt rakakrem með silki mjúkri áferð sem fæst meðal annars þökk sé fitusýrum úr kaldpressuðum jurtaolíum ásamt shea- og cupuacu-smjöri.
Kremið hentar bæði sem dag- og næturkrem. Innihaldsefnin styðja við unglegt útlit húðarinnar yfir daginn og hjálpar henni að endurnýja sig á nóttunni.
Þetta unisex rakakrem veitir húðinni fjölþætta umhirðu:
Styrkir húðina og örvar náttúrulega kollagen framleiðslu
Mýkir fínar línur og hrukkur
Lýsir húðina og jafnar húðlit
Gefur raka og mýkir húðina
Andlitskremið hefur hlotið fjölda virtra verðlauna og er í miklu uppáhaldi hjá þeim sem eru með þurra, þroskaða og viðkvæma húð.
Helstu innihaldsefni
Birkisafi (Birch sap)
Gefur húðinni mikinn raka og inniheldur vítamín, steinefni, andoxunarefni og amínósýrur sem hjálpa til við að jafna húðlit og gefa ljóma. Hefur bólgueyðandi eiginleika sem draga úr roða og ertingu fullkomið fyrir viðkvæma húð.
Furubarkarþykkni (Pine bark extract)
Örvar kollagen framleiðslu og hjálpar til við að draga úr sýnilegum öldrunareinkennum eins og hrukkum, fínum línum, sólarskemmdum og litablettum.
Hafþyrniolía (Sea buckthorn oil)
Algjör vítamínbomba! Þekkt fyrir græðandi og endurnýjandi áhrif á húð. Hjálpar til við að lagfæra húð, meðal annars við bruna, sár, sólbruna og ertingu. Hefur sterka andoxunar- og bólgueyðandi eiginleika.
Sæt appelsínu ilmkjarnaolía (Sweet orange essential oil)
Gefur kreminu mildan, ferskan ilm og getur einnig haft jákvæð áhrif á skap og vellíðan.
Er Recharging Moisturizer öruggt á meðgöngu og við brjóstagjöf?
Henua Recharging Moisturizer er öruggt að nota eftir fyrsta þriðjung meðgöngu.
Mælt er með að forðast húðvörur með ilmkjarnaolíum og benzýlalkóhóli á fyrsta þriðjungi sem varúðarráðstöfun, þar sem það tímabil er sérstaklega viðkvæmt fyrir fósturþroska.
Eftir fyrsta þriðjung telst notkun slíkra innihaldsefna almennt öruggari. Rakakremið er einnig Ecocert COSMOS lífrænt vottað.
Hrein og græðandi húðumhirða – unnin af ást og jákvæðri orku
Hver framleiðslulota er unnin af mikilli natni og nákvæmni. Hver krukka er „blessuð“ í framleiðsluferlinu til að bera með sér orku vellíðunar og kærleika Allar Henua vörur eru handunnar í Finnlandi í litlu magni, sem tryggir hreinleika, ferskleika og framúrskarandi gæði í hverri flösku.
Varan hefur farið í gegnum húðlæknis- og öryggisprófanir.
Allar formúlur eru þróaðar frá grunni, engir tilbúnir grunnar notaðir.
Notaðu kremið daglega á hreina og þurra húð. Vegna næringarríkar formúlu duga 1–2 pumpur fyrir allt andlitið og bringusvæðið (décolleté).
Kremið hentar bæði sem dag- og næturkrem. Innihaldsefnin styðja við unglegt útlit húðarinnar yfir daginn og hjálpa henni að endurnýja sig á nóttunni.
Fyrir hverja hentar Henua Recharging Moisturizer?
Recharging Moisturizer er fjölhæft andlitskrem sem mætir ólíkum þörfum húðarinnar. Það hentar sérstaklega vel fyrir þroskaða og húð sem er að eldast, styður við breytingar sem verða með tímanum.
Ef þú ert að leita að góðu rakakremi fyrir þurra húð er þetta frábær kostur. Það er ríkt af nærandi olíum sem mýkja húðina og hjálpa til við að halda raka, á meðan formúlan styður við heilbrigt jafnvægi húðflórunnar.
Kremið er létt en mjög rakagefandi og hentar vel undir farða. Það er einnig unisex og því góður kostur fyrir alla þar á meðal karla sem vilja raka, styrkja og viðhalda unglegu útliti húðarinnar, auk þess að henta vel í tengslum við rakstur.
Meðganga og brjóstagjöf
Mælt er með að forðast húðvörur sem innihalda ilmkjarnaolíur og benzýlalkóhól á fyrsta þriðjungi meðgöngu sem varúðarráðstöfun, þar sem það tímabil er sérstaklega viðkvæmt fyrir fósturþroska.
Eftir fyrsta þriðjung telst notkun slíkra innihaldsefna almennt öruggari og hættan talin minni.
Centaurea cyanus (garðakornblóma) blómavatn*, betula
pendula (birki) safi*, simmondsia chinensis (jojoba) fræolía*,
argania spinosa (argan) fræolía*, glycerín, cetearyl olivate,
butyrospermum parkii (shea) butter*, theobroma grandiflorum
(cupucua) smjör, sorbitan olivate, pinus sylvestris (furutrés)
extrakt, hippophae rhamnoides (hafþyrnis) fræolía, helianthus
annuus (sólblóma) fræolía, rosmarinus officinalis (rósmarín)
laufaextrakt, citrus aurantium dulcis (sætappelsínu kjarnaolía)
peel oil expressed*, xanthan gum, tocopherol, natríumbensóat,
natríumdýhýdróasetat, benzyl alkóhól, kalíumsorbat,
sítrónusýra, límónen**
* Innihaldsefni úr lífrænni framleiðslu
** Náttúrulega til staðar í kjarnaolíum
100% vegan
99% náttúruleg innihaldsefni
92% af heildar innihaldsefnum eru úr lífrænni ræktun.
Hvað gerir Recharging Moisturizer fyrir húðina?
Recharging Moisturizer gefur húðinni djúpan raka, mýkir hana og styrkir. Kremið styður við náttúrulega kollagen framleiðslu, mýkir fínar línur, jafnar húðlit og hjálpar húðinni að líta út fyrir að vera heilbrigð, stinn og vel nærð.
Hentar þetta rakakrem viðkvæmri húð?
Já. Rakakremið hentar viðkvæmri húð og inniheldur róandi og nærandi innihaldsefni eins og birkisafa og hafþyrniolíu. Það hjálpar til við að draga úr roða og ertingu á meðan það styrkir húðina.
Má nota kremið bæði dag og nótt?
Já. Recharging Moisturizer er hannað til notkunar bæði morgna og kvölds. Á daginn verndar það og styður húðina, en á nóttunni styður það við náttúrulega endurnýjun hennar.
Er Recharging Moisturizer létt eða þykkt krem?
Kremið hefur létta, kremkennda áferð sem frásogast vel án þess að vera þung á húðinni. Þökk sé kaldpressuðum jurtaolíum, shea-smjöri og cupuaçu-smjöri veitir það djúpan raka á þægilegan hátt.
Er Recharging Moisturizer öruggt á meðgöngu og við brjóstagjöf?
Recharging Moisturizer er öruggt að nota eftir fyrsta þriðjung meðgöngu og á meðan á brjóstagjöf stendur. Það inniheldur ilmkjarnaolíur og benzýlalkóhól, sem oft er mælt með að forðast á fyrsta þriðjungi sem varúðarráðstöfun. Varan er Ecocert COSMOS lífrænt vottuð.
Hvenær á að bera rakakrem á í húðumhirðunni?
Berðu rakakrem á eftir andlitsvatni eða serum til að gefa raka, styrkja húðhjúpinn og loka raka inni.
Get ég notað það með öðrum Henua vörum?
Já. Henua vörurnar eru hannaðar til að vinna saman sem heildstæð norræn húðumhirðu lína fyrir jafnvægi og heilbrigða húð.
Öruggar greiðslur og sendingar
Öruggar greiðslur og sendingar
- Afgreiðum pantanir innan 1–3 virkra daga
- 30 daga skilafrestur
- Örugg greiðsla
