Henua Organics
Henua organics - Illuminating Eye Serum - Með kaffi, bakuchiol og týtiberjum
Henua organics - Illuminating Eye Serum - Með kaffi, bakuchiol og týtiberjum
Couldn't load pickup availability
Bio-Retinol augnserum fyrir dökka bauga, bjúg og viðkvæma húð
Knúið af bio-retinoli (bakuchiol), augnserum er létt og nærandi og hjálpar til við að draga úr dökkum baugum og bjúg, mýkja fínar línur og styðja við náttúrulega kollagen framleiðslu, án ertingar.
✔ Bio-retinol (bakuchiol) – mildur valkostur við retinol
✔ Dregur úr dökkum baugum og bjúg undir augum
✔ Mýkir fínar línur og örvar kollagen framleiðslu
✔ Lýsir upp og jafnar húðina í kringum augun
✔ Kælandi ryðfrí stál rúllu sem dregur úr þrota og þreytu
✔ Hentar viðkvæmri húð
Framleitt í Finnlandi með norrænum jurtaolíum. Þróað frá grunni af stofnandanum og snyrtifræðingnum Jenni Tuominen með viðkvæma húð í huga.
Ávinningur af Illuminating augnserumi
Augnserumið er samsett úr öflugum náttúrulegum innihaldsefnum. Serumið er hannað til að næra og meðhöndla viðkvæma húðina í kringum augun og skila sýnilegum árangri.
Augnserumið okkar er í miklu uppáhaldi hjá þeim sem eru með þurra, þroskaða og/eða viðkvæma húð.
Helstu kostir augnserumsins
1. Bakuchiol (Bio-Retinol)
Bakuchiol er mildari og náttúrulegri valkostur við retinol, með svipuð öldrunarhamlandi og lýsandi áhrif, án ertingar.
- Bætir teygjanleika, stinnleika og mýkt húðarinnar
- Dregur úr fínum línum og hrukkum
- Jafnar húðlit og minnkar litabreytingar
- Róar húðina og dregur úr roða, bólgu og ertingu
2. Kaffiolía (Coffee Oil)
Kaffiolía hjálpar til við að fríska upp á augnsvæðið og gefa því meiri birtu:
- Bætir blóðflæði og dregur úr dökkum baugum
- Minnkar bjúg og þrota með bólgueyðandi eiginleikum
- Örvar framleiðslu kollagens og elastíns og styrkir húðina
3. Lingonberjafræolía (Lingonberry Seed Oil)
Gefur augnsvæðinu mikla næringu og vernd:
- Dregur úr roða og ertingu
- Lýsir húðina og jafnar húðlit
- Andoxunarrík og rakagefandi, minnkar sýnileika lína og hrukka
- Djúpnærir með fitusýrum sem halda húðinni fylltri og mjúkri
4. Rósaberjakjarnaolía (Rosehip Seed Oil)
Þekkt fyrir græðandi og endurnýjandi eiginleika:
- Styður við viðgerð og endurnýjun húðar
- Bætir heilsu og útlit húðarinnar í kringum augun
5. Hafraolía (Oat Oil)
Fullkomin fyrir viðkvæma húð:
- Róar og mýkir ertaða húð
- Dregur úr roða og óþægindum
- Hefur bólgueyðandi áhrif
Af hverju að velja Henua augnserum?
Augnserumið sameinar þessi öflugu náttúrulegu innihaldsefni til að veita markvissa og árangursríka umhirðu fyrir augnsvæðið.
Segðu bless við dökka bauga, bjúg, fínar línur og ertingu og njóttu bjartari, sléttari og unglegri húðar í kringum augun.
Hristu flöskuna vel fyrir notkun til að tryggja að innihaldið blandist jafnt. Renndu rúllunni varlega yfir húðina til að dreifa seruminu jafnt í kringum augnsvæðið.
Ef eitthvað af seruminu situr eftir á húðinni, klappaðu því varlega inn með baugfingri.
Ryðfría stálrúllan hjálpar til við að fríska upp á þreytt augu og styður við sogæðaflæði þegar hún er notuð í áttlaga (figure-eight) hreyfingum yfir augnsvæðið.
Þú getur einnig geymt rúlluna í kæli rétt fyrir notkun til að auka kælandi og frískandi áhrif á húðina. ( Ekki geyma serumið lengur en 10 mínútur í kæli.)
Fyrir hverja er Henua Illuminating Eye Serum best?
Henua Illuminating Eye Serum hentar sérstaklega vel fyrir þroskaða og þurra húð, þökk sé andoxunarríkri, mýkjandi og léttri formúlu.
Það er einnig mjög hentugt fyrir viðkvæma húð vegna róandi og rakagefandi innihaldsefna. Ilmefnalaus og ofnæmisprófuð formúla gerir það að frábæru vali fyrir þá sem eru viðkvæmir fyrir ilmefnum eða hafa ofnæmi.
Ef þú ert að glíma við dökka bauga, bjúg, þurrk undir augum eða vilt einfaldlega bæta útlit augnsvæðisins, er þetta serum fullkomin viðbót við daglega húðumhirðu.
Meðganga og brjóstagjöf
Varan er örugg í notkun á allri meðgöngu og meðan á brjóstagjöf stendur.
Simmondsia chinensis (jojoba) fræolía*, Avena sativa (hafra)
kjarnaolía, Rosa canina (hundarósa) fræolía*, psoralea
corylifolia (bakuchiol) fræolía, Coffee arabica fræolía,
vaccinium vitis-idae (týtuberja) fræolía, helianthus annuus
(sólblóma) fræolía, Rosmarinus officinalis (rósmarín)
laufaextrakt, tocopherol (vitamin E).
* Innihaldsefni úr lífrænni ræktun
100% votaður náttúrulegur uppruni
84% vottað lífrænt
Vegan
Hvað gerir Illuminating augnserum? Illuminating augnserum hjálpar til við að draga úr dökkum baugum, bjúg, fínum línum og hrukkum á meðan það gefur húðinni djúpan raka og róar viðkvæmt augnsvæðið. Það styður við kollagen framleiðslu og skilur húðina eftir bjartari, sléttari og ferskari.
Þarf ég að bera annað ofan á augnserumið?
Nei. Þrátt fyrir að kallast serum er Illuminating Eye Serum mjög nærandi olíublanda sem veitir nægan raka og umhirðu eitt og sér. Það frásogast vel og skilur húðina mjúka, verndaða og þægilega því er ekki þörf á augnkremi ofan á.
Hentar þetta augnserum viðkvæmri húð?
Já. Serumið er ilmefnalaust, ofnæmisprófað og inniheldur róandi innihaldsefni eins og hafra olíu og lingonberjafræolíu, sem gerir það hentugt fyrir viðkvæma og viðbragðshneigða húð í kringum augun.
Getur þetta augnserum hjálpað við dökka bauga og bjúg?
Já. Kaffiolía hjálpar til við að bæta blóðflæði og draga úr bjúg, á meðan bakuchiol (náttúrulegur valkostur við retinol) og andoxunarríkar jurtaolíur hjálpa til við að lýsa upp augnsvæðið og bæta útlit dökkra bauga með tímanum.
Hvað er bakuchiol og af hverju er það notað í stað retinol?
Bakuchiol er valkostur við retinol sem veitir svipaðan ávinning, eins og að mýkja fínar línur, bæta teygjanleika og jafna húðlit án ertingar. Þess vegna hentar það sérstaklega vel fyrir viðkvæm svæði eins og í kringum augun.
Er Illuminating Eye Serum öruggt á meðgöngu og við brjóstagjöf?
Já. Serumið er öruggt í notkun á meðgöngu og meðan á brjóstagjöf stendur. Það er Ecocert COSMOS Natural vottað og án ertandi eða sterkra innihaldsefna.
Má nota Illuminating Eye Serum í kringum munnsvæðið?
Já. Serumið hentar einnig vel í kringum varir þar sem fínar línur og þurrkur koma oft fram.
Bakuchiol hjálpar til við að mýkja línur og styðja við kollagen framleiðslu, á meðan nærandi jurtaolíur gefa raka og róa húðina, fullkomið fyrir viðkvæm svæði.
Er þetta góður mildur valkostur við retinol fyrir viðkvæma húð?
Já. Serumið inniheldur bio-retinol (bakuchiol), sem er milt og unnið úr plöntum og er góður valkostur við hefðbundið retinol.
Það veitir svipaðan ávinning, eins og að draga úr línum, styðja kollagen og bæta húðlit en án ertingar eða þurrks sem retinol getur valdið. Því er það sérstaklega hentugt fyrir viðkvæma húð og augn- og varasvæði.
Hvenær á að nota augnserum í húðumhirðunni?
Notaðu eftir andlitsvatni en áður en rakakrem er borið á, til að gefa raka, lýsa og mýkja húðina í kringum augun.
Get ég notað það með öðrum Henua vörum?
Já. Henua vörurnar eru hannaðar til að vinna saman sem heildstæð norræn húðumhirðulína fyrir jafnvægi og heilbrigða húð.
Öruggar greiðslur og sendingar
Öruggar greiðslur og sendingar
- Afgreiðum pantanir innan 1–3 virkra daga
- 30 daga skilafrestur
- Örugg greiðsla
