Skip to product information
1 of 11

Henua Organics

Henua Organics - Beautifying toner - Með birkisafa og furuberki

Henua Organics - Beautifying toner - Með birkisafa og furuberki

Magn

Rakagefandi og kollagen örvandi andlitsvatn fyrir þurra, viðkvæma og þroskaða húð, endurheimtir ljóma og jafnvægi húðarinnar

Margverðlaunað andlitsvatn sem er rakagefandi og endurheimtir náttúrulegt pH-jafnvægi húðarinnar, eykur rakastig og styður við náttúrulega kollagen framleiðslu fyrir mýkri og ljómandi húð.

✔ Eykur raka og náttúrulegan ljóma
✔ Styður við kollagen framleiðslu og endurnýjun húðar
✔ Endurheimtir pH-jafnvægi fyrir betri upptöku virkra efna
✔ Ríkt af andoxunarefnum og róandi eiginleikum
✔ Hentar þurri, þroskaðri og viðkvæmri húð

Framleitt í Finnlandi með norrænum jurtum og næringarríkum birkisafa.
 Þróað frá grunni af stofnandanum og snyrtifræðingnum Jenni Tuominen.

 

 





 

 

 

 

 

 

  • Henua Beautifying Toner undirbýr húðina fyrir betri upptöku annarra húðvara. Andlitsvatnið hjálpar til við að endurheimta náttúrulegt pH-jafnvægi húðarinnar, sem gerir serumum og rakakremum kleift að virka betur og skila meiri árangri. Þetta andlitsvatn er án viðbættra ilmefna og ilmkjarnaolíu. Henua tónerinn inniheldur mikið magn af  næringarefnum sem veita húðinni líf og orku.
  • Tónerinn er rakagefandi og andoxunarríkur, hjálpar til við að örva náttúrulega kollagen framleiðslu, endurnærir húðina, frískar upp á hana og hjálpar til við að endurheimta rakajafnvægi, ljóma og unglegt útlit. Tónerinn hefur hlotið fjölda verðlaunaog er sérstaklega vinsælt hjá þeim sem eru með þurra, þroskaða og/eða viðkvæma húð.
  • Helstu innihaldsefni
  • Birkisafi (Birch sap)
    Gefur húðinni mikinn raka. Inniheldur vítamín, steinefni, andoxunarefni og amínósýrur sem hjálpa til við að jafna húðlit og gefa ljóma. Hefur náttúrulega bólgueyðandi eiginleika sem draga úr roða og ertingu, fullkomið fyrir viðkvæma húð. Hjálpar einnig til við að hreinsa húðina og fjarlægja eiturefni og óhreinindi.
  • Furubörkur (Pine bark extract)
    Hefur verið sýnt fram á að örvar kollagenframleiðslu. Hjálpar til við að draga úr sýnilegum öldrunareinkennum eins og litarefnisblettum, hrukkum, sólarskemmdum og fínum línum.
  • Rósavatn (Rose water)
    Þekkt fyrir rakagefandi, róandi og mýkjandi eiginleika.
  • Kornblómavatn (Cornflower water)
    Stinnir húðina(astringent), sem hjálpar til við að loka svitaholum og stjórna fituframleiðslu. Einnig tónar, lýsir og jafnar húðlit.
  • Henua tónerinn er fullkomin fyrir alla sem vilja viðhalda unglegu útliti húðarinnar. Þetta andlitsvatn veitir húðinni djúpa næringu.
  • Henua Beautifying Toner er öruggt að nota eftir fyrsta þriðjung meðgöngu. Mælt er með að takmarka notkun á vörum sem innihalda benzýlalkóhól á fyrsta þriðjungi sem varúðarráðstöfun.
  • Eftir fyrsta þriðjung er benzýlalkóhól talið öruggt í staðbundinni notkun. Andlitsvatnið er Ecocert COSMOS lífrænt vottað.Hrein og græðandi húðumhirða – unnin af ást og jákvæðri orku
    Hver framleiðslulota er unnin af mikilli natni og nákvæmni. Hver flaska er „blessuð“ í framleiðsluferlinu til að bera með sér orku vellíðunar og kærleika Allar Henua vörur eru framleiddar í Finnlandi sem tryggir hreinleika, ferskleika og framúrskarandi gæði í hverri flösku.
  • Varan hefur farið í gegnum húðlæknis- og öryggisprófanir.
  • Allar formúlur eru þróaðar frá grunni, engir tilbúnir grunnar eða önnur fylliefni notuð.
  • Notaðu daglega eftir hreinsun. Spreyjaðu á hreina húð (eða á bómullarskífu) kvölds og morgna áður en aðrar húðvörur eru notaðar.
  • Má endurnýja yfir daginn til að fríska upp á húðina og bæta raka, einnig yfir farða.
  • Hristu flöskuna fyrir notkun.
  • Fyrir hverja er Beautifying Toner best?
    Beautifying Toner hentar sérstaklega vel fyrir þroskaða húð, sem og alla sem vilja viðhalda unglegu útliti.
  • Ef þú ert að leita að andlitsvatni fyrir þurra húð, veitir þetta andlitsvatn mikinn raka og hjálpar til við að endurheimta rakajafnvægi húðarinnar, þannig að hún verður fersk og nærð.
  • Meðganga og brjóstagjöf
    Varan er örugg í notkun eftir fyrsta þriðjung meðgöngu.
  • Mælt er með að takmarka notkun á vörum sem innihalda benzýlalkóhól á fyrsta þriðjungi sem varúðarráðstöfun, þar sem það tímabil er sérstaklega viðkvæmt fyrir fósturþroska.
  • Eftir fyrsta þriðjung er benzýlalkóhól talið öruggt til staðbundinnar notkunar á meðgöngu.

Betula pendula (birki) safi*, rosa damascena (rósa)

blómavatn*, centaurea cyanus (garðakornblóma)

blómavatn*, pinus sylvestris (skógarfuru) extrakt,

natríumbensóat, natríumdehýdróasetat, benzýlalkóhól,

kalíumsorbat, sítrónusýra

*Innihaldsefni úr lífrænni ræktun

  • 100% vegan
  • 100% náttúruleg innihaldsefni

Hentar Beautifying Toner fyrir viðkvæma húð?
Já. Beautifying Toner er án viðbættra ilmefna og ilmkjarnaolíu og inniheldur róandi jurta- og blómavötn eins og rósavatn og korn blómavatn, sem gerir hann hentugan fyrir viðkvæma, þurra og þroskaða húð.

Hvað gerir þetta andlitsvatn fyrir húðina?
Tónerinn er andoxunarríkur og gefur húðinni djúpan raka, hjálpar til við að örva náttúrulega kollagen framleiðslu og styður við endurnýjun húðfrumna. Hún undirbýr einnig húðina fyrir betri upptöku seruma og rakakrema, á sama tíma og hún endurheimtir rakajafnvægi, ljóma og heilbrigt útlit.

Getur þessi tóner hjálpað þurri eða þroskaðari húð?
Já. Tónerinn er sérstaklega gagnlegur fyrir þurra, þroskaða húð. Innihaldsefni eins og birkisafi og furubarkaþykkni hjálpar til við að gefa raka, bæta teygjanleika og draga úr fínum línum og öðrum öldrunareinkennum.

Er Beautifying Toner öruggur á meðgöngu og við brjóstagjöf?
Beautifying Toner er öruggt að nota eftir fyrsta þriðjung meðgöngu og á meðan á brjóstagjöf stendur. Það inniheldur benzýlalkóhól, sem er almennt talið öruggt í staðbundinni notkun eftir fyrsta þriðjung. Mælt er með að forðast notkun á fyrsta þriðjungi sem varúðarráðstöfun.

Hvað gerir þennan tóner öðruvísi en aðra?
Þessi tóner er margverðlaunaður fyrir góða virkni, hann sameinar öflug norræn innihaldsefni eins og birkisafa og furubarkaþykkni með róandi blómavötnum til að gefa raka, styrkja og lífga upp á húðina. Hver framleiðslulota er unnin í litlu magni í Finnlandi með mikilli natni og gæðum.

Hvenær á að nota tónerinn í húðumhirðunni?
Notaðu eftir hreinsun til að gefa raka og endurheimta náttúrulegt pH-jafnvægi húðarinnar. Andlitsvatn undirbýr húðina einnig fyrir betri upptöku serum, krema og olía.

Get ég notað það með öðrum Henua vörum?
Já. Henua vörurnar eru hannaðar til að vinna saman sem heildstæð norræn húðumhirðu lína fyrir jafnvægi og heilbrigða húð.

 

Öruggar greiðslur og sendingar

  • Afgreiðum pantanir innan 1–3 virkra daga
  • 30 daga skilafrestur
  • Örugg greiðsla
Skoða upplýsingar