Sætt og salt , þetta lakkríssýróp er búið til úr lífrænum reyrsykri og er bragðmikið af sætum lakkrís, krydduðu íslensku blóðbergi (Arctic Thyme), söltu salmíaki og anísilm.
Sýrópið er frábært að nota á ís og aðra eftirrétti, í drykki og sælgæti. Tilvalið í konfektgerð, marengs, kökur, í kaffi og til að bragðbæta mjólk og aðrar mjólkurvörur. Einnig er það notað til að marinera kjöt, reyktan lax og grænmeti. Mælum sérstaklega með að prófa sýrópið á lambið.
Sýrópið er bragðmikið og því þarf lítið magn.
Innihald
Lífrænn reyrsykur
Vatn
Villt íslenskt blóðberg (Arctic Thyme)
Anísolía (úr anísfræjum)
Lakkrísrót
Salmíak
Geymsla
Geymist á dimmlum og þurrum stað við stofuhita.
Hér er uppskift af Rice crispies kökum með lakkríssýrópi, í boði Urtu.