Búlgörsk lavender ilmkjarnaolía er gufueimuð úr lavenderplöntunni og er þekkt fyrir, mildan og örlítið sætan blómailm. Lavender hefur verið notað í aldaraðir til að stuðla að vellíðan og er ein vinsælasta ilmkjarnaolían í ilmmeðferð og ilmvatnsgerð.
Olían er oft notuð til að draga úr streitu, spennu og þreytu og skapa róandi stemningu. Hún hentar vel í ilmlampa, einnig út í bað fyrir spa upplifun heima.
Lavender ilmkjarnaolía er yfirleitt notuð blönduð með burðarolíu eins og möndlu-, vínberjakjarna- eða jojobaolíu fyrir húðnotkun.
Athugið: Ilmkjarnaolíur okkar eru ekki ætlaðar til inntöku. Ráðlagt er að hafa samráð við sérfræðing við notkun í heilsutengdum tilgangi.