Villimey
Share
Vörurnar frá Villimey eru lífrænt vottaðar af Vottunarstofunni Túni sem gefur út reglur um lífrænar aðferðir í framleiðslu landbúnaðar- og náttúruafurða. Reglur Túns miðast við íslenskar og evrópskar lagareglur um sama efni.
Lífrænt vottaðar vinnslustöðvar uppfylla kröfur um innihald afurða, uppruna og aðgreiningu hráefna, gæðastýringu og fleira sem reglur kveða á um. Ef innihaldsefni upprunnin úr landbúnaði eru a.m.k. 95% vottuð lífræn og það sem á vantar eru svonefnd „leyfileg innihaldsefni af hefðbundnum uppruna“, er heimilt að votta viðkomandi vöru sem „lífræna“. Ef slík efni eru undir 95% en ná þó 70% er einungis heimilt að vísa til lífrænna aðferða í innihaldslýsingum.
Vörurnar frá Villimey eru með 100% lífræna vottun.