Uppskriftir af ferskum heimilisilmum

Uppskriftir af ferskum heimilisilmum

Á næstunni mun ég deila uppskriftum af ilmum fyrir heimilið, reyndar geta þessar blöndur verið notaðar í ilmvötn með réttum grunnum sem eru húðvænir, ég nota tildæmis fljótandi kókosolíu sem grunn í ilmbrennara og einnig sem ilmi sem ég nota á sjálfa mig.

Uppkriftirnar sem ég deili, reyni ég að skipta því flokka til að auðvelda ykkur að finna það sem ykkur finnst aðlaðandi. Þó ég byrji á fersku ilmunum þá fylgja haust - og jólailmirnir fljótlega. 

Af ferskum sítrusilmblöndum sem ég er búin að vera prófa að blanda, eru þessir uppáhalds,  þessi ilmir eiga það sameiginlegt að fera sítruskenndir og mjög ferskir. Allar blöndurnar er blandaðar með hreinum ilmkjarnaolíum, hægt er að aðlaga hlutföllin eftir smekk hvers og eins og um að gera leika sér með hvaða ilmi maður blandar saman. Að þessu sinni notaði ég eftirfarandi olíur:

 

  • Tea Tree – Ferskur og jurtakenndur ilmur sem gefur sterka tilfinningu fyrir hreinleika og ferskleika. Oft notuð í blöndur sem eiga að fríska upp á rýmið.
  • Oregano – Sterkur og kryddaður jurtailmur sem gefur kraft og hlýju. Olían er mjög öflug og því þarf yfirleitt aðeins lítið magn.
  • Eucalyptus – Ferskur og svalandi ilmur sem gefur tilfinningu fyrir frjálsari öndun og ferskleika. Frábær þegar þú vilt skapa endurnærandi stemningu.
  • Sítrónugras – Ferskur og upplífgandi sítrusilmur með grænum jurtatónum. Gefur rýminu hreina, bjarta og orkumikla tilfinningu.
  • Piparmynta – Svalandi og kröftugur ilmur sem vekur skilningarvitin. Oft tengd við aukna árvekni, fókus og minni tilfinningu fyrir þreytu.
  • Sítróna – Bjartur og ferskur sítrusilmur sem getur verið upplífgandi og gefið tilfinningu fyrir orku og ferskleika.
  • Rósmarín – Ferskur jurtailmur sem er gjarnan tengdur við árvekni, einbeitingu og fókus. Góður þegar hugurinn þarf smá hressingu.
  • Lavender – Mjúkur og róandi ilmur sem er mikið notaður til að skapa slökun og ró. Lavender hefur einnig verið rannsakaður í tengslum við streitu og svefn.

Til baka í bloggið