Geta ilmkjarnaolíur gert lífið bærilegra

Geta ilmkjarnaolíur gert lífið bærilegra

Frá því að ég eignaðist börn hef ég verið hrifin af ilmkjarnaolíum. Þær hafa haft margvísleg jákvæð áhrif á vellíðan heimilisfólkið og heimilið. 

Síðustu ár var mér hins vegar sparkað harkalega inn í skeið sem mér fannst alls ekki eftirsóknarvert: BREYTINGASKEIÐIÐ!

Ég áttaði mig nú ekki alveg á því strax. Það var ekki fyrr en mér fannst allir í kringum mig vera orðnir bjánar að ég þurfti að horfast í augu við sjálfa mig. Það gat nú varla verið rétt. Mögulega var eitthvað undarlegt að gerast hjá mér sjálfri? Mér leið eins og reynslumiklum einstaklingi með unglingaveikina.

Þegar ég byrjaði að nota ilmkjarnaolíur notaði ég þær meðal annars við gerð eigin blautþurrka og koddaspreyja og í ilmbrennara. Ég notaði þær líka til að gefa þvottinum ferskan ilm, enda valdi ég ilmefnalaus þvottaefni.

Þegar ég stofnaði Myrra Living voru ilmkjarnaolíurnar meira í aukahlutverki með öðrum vörum. Eftir heilt ár af því að kafa dýpra í heim þeirra hefur áhuginn hins vegar vaxið jafnt og þétt. Þær hafa fengið sífellt stærra hlutverk í mínum daglegu venjum og því sem ég vel fyrir heimilið.

Á síðustu árum hef ég fundið að sumar vörur sem ég gat áður notað henta mér ekki lengur. Eftir langa þrautagöngu hef ég komist að því að einfaldar vörur, með innihaldsefnum sem ég þoli vel, henta mér best.

Á þessum tíma hef ég meðal annars glímt við eftirfarandi — og listinn er ekki tæmandi:

  • Hita- og svitakóf
  • Svefntruflanir
  • Lið- og vöðvaverki
  • Þreytu og orkuleysi
  • Skapsveiflur og pirring
  • Kvíða á sterum
  • Heilaþoku
  • Kláða, þurra húð og exem
  • Meltingartruflanir
  • Hárlos

Ilmur og vellíðan

Það er ekki bara mín reynsla sem hefur vakið áhuga minn á ilmkjarnaolíum. Rannsóknir hafa gefið vísbendingar um að ilmur af Lavender og Bergamot geti stutt við betri svefn og dregið úr sumum einkennum eftir tíðahvörf. Neroli hefur einnig sýnt áhugaverðar niðurstöður þegar kemur að líkamlegri líðan og kynlöngun. Þetta finnst mér spennandi, þótt olíurnar séu auðvitað engin töfralausn. Hér má lesa meira um rannsóknirnar á lavender og bergamot og neroli.

Fyrir mér eru ilmkjarnaolíurnar fyrst og fremst hluti af því að skapa rólega stund og styðja við eigin vellíðan.

Það fyrsta sem mig langar að deila með ykkur er það sem hefur hjálpað mér að gera næturnar bærilegri þegar svefntruflanir og nætursviti láta á sér kræla. Fyrir utan að skipta alveg í 100% bómull og hör í sængurfötum og fjárfesta í ullarsæng þá er hefur ilmolíublanda hjálpað mér mikið. Ég blanda ilmkjarnaolíur bæði í ilmefnalaus líkamskrem og bý til mína eigin olíu sem ég ber á úlnlið, iljar og háls á hverju kvöldi. Hún er bara á náttborðinu alltaf tilbúin til notkunar. 

Ég nota 10 ml brúnar glerflöskur, ýmist með dropateljara eða pípettuloki. Sem grunnolíu finnst mér gott að nota fljótandi kókosolíu (fractionated coconut oil), jojobaolíu eða blöndu af hvoru tveggja.

Blöndun og styrkur

Ilmkjarnaolíur eru þéttar og þarf að þynna þær áður en þær eru bornar á húð. Fyrir milda kvöldblöndu er varfærnislegt að byrja á um 0,5–5% styrk. Hentugur styrkur fer þó eftir olíutegund, húð og notkunarsvæði; sumar olíur hafa sérstök hámarks mörk. Meiri styrkur þýðir ekki endilega meiri ávinning.

Hér eru áætluð viðmið fyrir dropafjölda:

  • 10 ml grunnolía: 0,5% (1 dropi), 1% (2 dropar), 2% (4 dropar), 3% (6 dropar), 5% (10 dropar).
  • 30 ml grunnolía: 0,5% (3 dropar), 1% (6 dropar), 2% (12 dropar), 3% (18 dropar), 5% (30 dropar).
  • 100 ml grunnolía: 0,5% (10 dropar), 1% (20 dropar), 2% (40 dropar), 3% (60 dropar), 5% (100 dropar).

Dropafjöldinn á við um heildarmagn ilmkjarnaolía sem bætt er í grunnolíuna. Prósenturnar eru áætlaðar, þar sem dropastærð er breytileg.

Kvöldblandan mín;

7 dropar af lavender

3 dropar Neroli

9-9.5 ml af burðarolíu (fljótandi kókosolíu. jojobaolíu eða blöndu af hvoru tveggja)

Ég  blanda með lítilli trekt beint í flöskuna, ef þú átt MJÖG nákvæma vigt, þá getur þú mælt magnið með henni en auðveldast er að nota dropateljara og fylla upp með burðarolíu.

Eitt af mínum verkfærum

Ég er ekki búin að finna lausnina, en ég hef fundið ýmis verkfæri sem hjálpa mér að gera dagana og næturnar bærilegri. Ilmkjarnaolíurnar gegna þar stóru hlutverki.

Ég tala út frá eigin reynslu og vona að einhverjar ykkar geti nýtt sér það sem hefur hjálpað mér. Ég vil líka taka fram að ég nota Estrógel og Utrogeston, sem hjálpa mér vissulega. Ilmkjarnaolíurnar eru hluti af minni vellíðunarrútínu og koma ekki í stað læknisráðgjafar eða meðferðar.

Hér fyrir neðan eru heimildir fyrir rannsóknarumfjölluninni og leiðbeiningunum um notkun. Fyrir frekari fróðleik bendi ég einnig á Tisserand Institute.

Heimildir

  1. Salehi-Pourmehr, H., o.fl. (2025). The impact of aromatherapy with Citrus bergamia–Lavandula angustifolia essential oil and/or mindfulness-based therapy on postmenopausal health: A factorial randomized controlled trial. Complementary Therapies in Medicine, 91, 103190. Skoða grein.

  2. Choi, S. Y., Kang, P., Lee, H. S. og Seol, G. H. (2014). Effects of inhalation of essential oil of Citrus aurantium L. var. amara on menopausal symptoms, stress, and estrogen in postmenopausal women: A randomized controlled trial. Evidence-Based Complementary and Alternative Medicine, 2014, 796518. Skoða grein.

  3. Tisserand, R. (án ártals). Dilution for essential oils. Tisserand Institute. Lesa leiðbeiningar um þynningu.

  4. Tisserand Institute. (án ártals). How to use essential oils safely. Lesa öryggisleiðbeiningar.

 

Til baka í bloggið