Jurtateblanda þróuð með íþróttafólk og hlaupara í huga. Blandan er steinefnarík og einstaklega bragðgóð, spánarkerfillinn og maltið gefa eilítið sætt bragð sem má auka með t.a.m íslensku hunangi. Sprettur er einnig góður sem kaldur drykkur og hentar því vel í drykkjarbrúsann yfir daginn.