Algengar spurningar

Pöntun og greiðsla

Hvernig panta ég?

Veldu þær vörur sem þú vilt kaupa, bættu þeim í körfuna og fylgdu leiðbeiningunum í gegnum greiðsluferlið. Þú getur greitt með korti, netgíró eða millifærslu.

Hvaða greiðslumáta taka þið við?

Við tökum við öllum helstu greiðslukortum, netgíró og millifærslu. Millafærsla verður að berast áður en sendingin er send. Greiðsluupplýsingar er KT:670807-2740 - banki 0133-26-022241. 

Get ég breytt eða afturkallað pöntun mína?

Ef þú vilt breyta eða afturkalla pöntun skaltu hafa samband við okkur eins fljótt og auðið er á siggalara@myrraliving.is. Ef pöntunin hefur þegar verið send gætir þú þurft að skila vörunum samkvæmt skilaskilmálum okkar.

Sending og afhending

Hversu langan tíma tekur sending?

Afgreiðslutími, við sendum sendinguna þína næsta virka dag. Einnig er hægt að sækja pantanir frítt á þriðjudögum og fimmtudögum milli 12-16 að Hólmgarði 34, 108 Reykjavík. Þú færð sendingarnúmer þegar pöntunin þín er send,þar getur þú fylgst með henni.

Sendið þið til annarra landa?

Já, við sendum til flestra landa. Sendingarkostnaður og afhendingartími fer eftir áfangastað, vinsamlegast hafið samband við okkur fyrir frekari upplýsingar siggalara@myrraliving.is.

Hvað kostar sending?

Hægt er að sækja sendingar frítt að Hólmgarði 34, 108 Reykjavík þriðjudaga og fimmtudaga milli 12-16. Annars er sendingarkostnaður er 750 krónur í póstbox með Dropp og 1250 krónur í heimsendingu, með Dropp einnig sendum við frítt ef verslað er fyrri 12.000 krónur. 

Skil og skipti

Get ég skilað vörum?

Já, þú hefur 30 daga skilarétt frá því að þú móttekur vöruna. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegri umbúðum.  

Hægt er að koma til okkar á þriðjudögum og fimmtudögum milli 12-16, ef sá tímir hentar ekki vinsamlegast hafið samband við siggalara@myrraliving.is og við finnum tíma sem hentar. Við skil,  sendum við þér þá allar upplýsingar til að skila og skipta. Þú greiðir kostnað við að senda skilin til okkar en við sendum þér ný skipti á okkar kostnað.

Hvenær fæ ég endurgreiðslu?

Endurgreiðsla fer fram innan 5-10 virkra daga eftir að við höfum móttekið og yfirfarið skilað vöruna.

Vörur og lager

Eru vörurnar á lager?

Ef vara er ekki á lager birtist það á vörusíðunni. 

Getið þið pantað vöru sem er uppseld?

Hafðu samband við okkur og við athugum hvort við getum pantað vöruna fyrir þig.

Þjónusta

Hvernig get ég haft samband við ykkur?

Þú getur sent okkur tölvupóst á siggalara@myrraliving.is eða hringt í síma 698-8168

Eruð þið með verslun sem ég get heimsótt?

Við erum fyrst og fremst netverslun en þú ert velkomin til okkar   þriðjudögum og fimmtudögum milli 12-16.