Búðu til þinn eigin heimilisilm með ferskri sítrónuverbenu, mjúkum lavender og hlýjum jurtatónum úr múskatsalvíu (clary sage).
Við leggjum áherslu á vönduð hráefni og notum aðeins fyrsta flokks ilmkjarnaolíur. Dreifigrunnurinn okkar er blanda af hreinni, fljótandi kókosolíu, E-vítamíni og alkóhóli.
Í kassanum finnur þú það sem þarf til að blanda ilminn og útbúa þinn eigin ilmdreifara. Einföld og skemmtileg upplifun fyrir þig eða falleg gjöf handa þeim sem hafa gaman af góðum ilmum og skapandi stundum.
Kassinn inniheldur:
Glerflösku fyrir ilmdreifara og ilmstrá
Þrjár ilmkjarnaolíur: sítrónuverbenu, lavender og múskatsalvíu
Dreifigrunn
Trekt og pípettur
Merkimiða
Leiðbeiningar og uppskrift að Ró og friði
Fylgdu uppskriftinni eða prófaðu þig áfram með hlutföllin og finndu þína uppáhaldsblöndu.
Lítil skapandi stund — ferskur og mjúkur ilmur fyrir heimilið.