Búðu til þína eigin ilmolíu með ferskri sítrónuverbenu, mjúkum lavender og hlýjum jurtatónum úr múskatsalvíu
Við leggjum áherslu á vönduð hráefni og notum aðeins fyrsta flokks ilmkjarnaolíur. Grunnurinn er hrein fljótandi kókosolía, e vítamín og hreinar ilmkjarnaolíur.
Í kassanum finnur þú það sem þarf til að blanda ilminn og útbúa þína eigin ilmolíu. Einföld og skemmtileg upplifun fyrir þig eða falleg gjöf handa þeim sem hafa gaman af góðum ilmum og skapandi stundum.
Kassinn inniheldur:
Tvær amberlitaðar glerflöskur 10 ml og innsiglis tappa
Þrjár ilmkjarnaolíur: sítrónuverbenu, lavender og múskatsalvíu 3 ml hver flaska
olíugrunn
Trekt og pípettur
Merkimiða
Leiðbeiningar og uppskrift
Fylgdu uppskriftinni eða prófaðu þig áfram með hlutföllin og finndu þína uppáhaldsblöndu.