Við erum ótrúlega spennt að kynna fyrstu ilmolíuna frá Myrra living - Rótfestu!
Ilmblandan er handblönduð hjá Myrru living með hágæða ilmkjarnaolíum
Rótfesta er djúp og róandi ilmolía , ilmblandan einkennist af jarðtengingu, hlýju og kyrrð, sætleiki vanillu í bland við jarðbundna tóna vetiver og patchouli. Argan er síðan jafnvægið sem ilmurinn þarf til að vera bæði mjúkur og kraftmikill.
Vanilla – sæt og hlý
Vetiver – jarðbundin og róandi
Patchouli – djúp og rík
Argan – mýkjandi og gefur jafnvægi
Notkun
Í ilmolíudreifara til að skapa róandi andrúmsloft
Nokkrir dropar í bað fyrir slökun
Í ilmglas í bílinn
Þar sem blandan er blönduð lífrænni burðarolíu má nota hana sem ilm á húðina með því að vera 1-3 dropa á til dæmil úlnlið eða háls