Leaves & Linen hefur ferskan og hreinan ilm sem minnir á léttan andblæ undir berum himni. Græn lauf og frískir sítrustónar blandast mjúkum blóma- og viðartónum og skapa fágaðan, mildan ilm sem fyllir rýmið án þess að verða yfirþyrmandi. Fallegur ilmur fyrir stofuna eða svefnherbergið, jafnt hversdags sem við sérstök tilefni.
Kertið er handhellt úr náttúrulegu sojavaxi og með viðarkveik sem gefur frá sér mildan brakandi hljóm þegar það logar. Græn glerkrukka, korklok og gjafaaskja úr kraftpappír skapa einfalt og náttúrulegt yfirbragð. Falleg gjöf eða notaleg viðbót við heimilið.