Af hverju skiptir máli að kaupa vörur sem eru framleiddar á sanngjarnan og heiðarlegan hátt
Share
Ég legg mikla áherslu á að velja vörur sem eru ekki bara fallegar og vandaðar, heldur einnig framleiddar á sanngjarnan og ábyrgan hátt. Fyrir mig skiptir máli að vörurnar sem ég býð upp á séu góðar fyrir fólk, mildar fyrir húðina og í takt við þau gildi sem ég vil standa fyrir.
Einn af mínum helstu birgjum er AWGifts, fyrirtæki sem hefur sett sér skýrar siðferðilegar reglur og leggur áherslu á ábyrg viðskipti. Þau vinna markvisst að því að tryggja sanngjarna framleiðslu, þar sem virðing er borin fyrir réttindum starfsfólks, engin undir 18 ára aldri vinnur í þeirra framleiðslu og birgjar eru heimsóttir reglulega til að tryggja að vinnubrögð séu í samræmi við þau gildi sem fyrirtækið stendur fyrir.
Þá leggja þau einnig áherslu á cruelty-free vörur og eru engar vörur prófaðar á dýrum.
Það sem mér finnst sérstaklega gott við AWGifts er að þau bjóða upp á fjölbreytt úrval af vörum sem passa vel við mína sýn: vörur sem eru hannaðar með vellíðan í huga, með náttúrulegum hráefnum og fallegri framsetningu. Hvort sem um er að ræða vörur fyrir heimilið, húðina eða daglega rútínu, þá eru þetta vörur sem sameina gæði, fagurfræði og góða tilfinningu.
Fyrir mig er þetta ekki bara spurning um að kaupa vörur, heldur að velja meðvitað. Að velja vörur sem ég get staðið með, mælt með af heilum hug.